Make your own free website on Tripod.com
Áhugamál | Partýmyndir | Ferðalögin | Enn er von | Karlrembann | Emailið mitt
Heimasíða Guðmundar

Velkominn á heimasíðuna mína

Kappinn hér til hliðar fæddist á fögrum sumardegi á fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í lok sjötta áratugs síðastliðnar aldar.
Á þessari mynd er drengurinn á trúlega á fimmta ári
og horfir björtum augum framm á veginn, með stórar væntingar til lífsins frammundan, en skildi allt hafa
ræst það sem hann sá frammundan.............

Að loknum grunnskóla hóf hann nám í rafeindavirkjun,
lauk því með sveinsprófi eftir smá baráttu.

Drengurinn hefur unnið m.a við saltfisk, minkabúi og hjá Pósti og síma sem í dag heitir Landsími Íslands.

Hafið þið áhuga á að kynnast kappanum betur þá má finna ýmislegt á undirsíðum hér á heimasíðunni, en áður en þið gerið það hvetur hann ykkur til þess að skrifa í gestabókina a.m.k þið sem ekki hafið nú þegar gert það.

Ekki veit hann mikið um ætt sína né uppruna nema að því leiti að Fremmrihálsætt kemur þar eitthvað við sögu.

Hann hefur alltaf talið sér trú um að hann sé hið mesta
ljúfmenni, göfugan og einnig góðviljaðan, listfengan telur hann sig með afbrigðum. Alltaf hefur hann talist barngóður
og var því skorað á hann eitt sinn þegar hann var atvinnulaus að sækja um vinnu á barnaheimilli.
Úrræðagóður er hann einnig og síðast en ekki síst mannkostur mikill, það síðarnefnda er trúlega hin mesta vitleysa, því ekki er hann gengin út.

Einnig hefur stráksi gaman af því að borða góðan mat, sjá góð leikrit, arka um fjöll og firnindi með bakpoka og tjald, fara í ræktina ásamt því að sitja á síðköldum við kertaljós í léttu spjalli drekkandi rauðvín og borða ný jarðaber.

Þið fyrirgefið stafsetningavillur , þær verða leiðréttar.

Skrá í gestabók Get your own FREE Guestbook from htmlGEAR skoða gestabók

A door; Actual size=180 pixels wide

Þarna var maður ungur og hafði engar áhyggjur

Click to receive e-mail
when this page is updated
Powered by NetMind

Nýtt á heimasíðunni

Síðustu breytingar

22/5/01 - Gestabókin sett inn

Unknown Gem Type: tlx.tlxinv.guestbook